top of page

Ljósmyndafrásögn um daglegt líf Jóns á Búrfelli. Tíminn sem ég fékk að eyða með Jóni í sveitinni var bæði skemmtilegur og eftirminnilegur. Fékk að lítast inn í líf hans og því kynnast betur þessum magnaða karakter sem Jón er.

Jón Eiríksson kúabóndi, listamaður og áhugaljósmyndari býr í sveitabænum Búrfelli í Miðfirði. Jón á hvorki sjónvarpi né GSM-síma svo oftast er bara hægt að ná á hann í hádeginu eða á kaffitíma.
Það eru aldrei dauðar stundir í lífi Jóns og eyðir hann ekki löngum tíma inn í heimahúsi. Þegar hann er ekki að sinna störfunum í bænum þá er hann annað hvort í listagalleríinu eða vinnuherberginu að mála og skissa.

bottom of page