top of page

Ljósmyndafrásögn um daglegt líf Jóns á Búrfelli. Tíminn sem ég fékk að eyða með Jóni í sveitinni var bæði skemmtilegur og eftirminnilegur. Fékk að lítast inn í líf hans jafnframt því kynnast betur þessum magnaða karakter sem Jón er.

Jón Eiríksson kúabóndi, listamaður og áhuga ljósmyndari býr á sveitabænum Búrfelli í Miðfirði. Jón á hvorki sjónvarp né GSM-síma svo oftast er bara hægt að ná á hann í hádeginu eða á kaffitímum.
Það eru aldrei dauðar stundir í lífi Jóns og eyðir hann ekki löngum tíma inn í heimahúsi. Þegar að hann er ekki að sinna störfunum á bænum þá er hann annað hvort í listagalleríinu eða vinnuherberginu að mála og skissa.

bottom of page